Hraðbankalausnir fyrir alla
Euronet EFT hraðbankalausnir eru hannaðar til að þjóna margs konar viðskiptageirum og þróaðar til að passa inn í viðskiptaumhverfi þitt og þjóna þörfum þínum og viðskiptavina þinna fyrir reiðufé.
Sem söluaðili Euronet EFT-hraðbanka muntu njóta óaðfinnanlegrar upplifunar þar sem við tökum ábyrgð á:
- Uppsetningu, viðhaldi og rekstrarstjórnun hraðbankans
- Framboði, flutningi og áfyllingu á reiðufé í hraðbanka af Euronet EFT og vottuðum samstarfsaðilum þess
- Samskiptum og umsjón á stjórnsýslumálum við sveitarfélög
- Áreiðanleg, fjöltyngd þjónustuvirkni
Hraðbankarnir sem við bjóðum upp á hafa verið hannaðir til að vinna með stórum eða litlum fyrirtækjum og sama hvaða tegund hraðbanka þér býðst mun nýjasta tækni, uppfærður hugbúnaður og leiðandi virkni, eins og DIP-kortalesarar (vörn gegn fönguðum kortum) og snertilausar laurnir fylgja með.
Hraðbankarnir okkar eru notaðir af ýmsum atvinnugreinum, allt frá litlum og meðalstórum smásöluaðilum til stórra verslanakeðja; í verslunarmiðstöðvum, matvöruverslunum, hótelum og áningarstöðum eins og flugvöllum, lestarstöðvum og höfnum. Við erum einnig með starfsemi í miðborgum og vinnum með sveitarfélögum að því að veita hraðbankaþjónustu á afskekktari og dreifðari stöðum þar sem bankar eru að fjarlægja eða loka starfsemi sinni.
BANKAR
GISTIÞJÓNUSTA OG AFÞREYING
Með því að bjóða upp á aðgang að reiðufé er líklegra að viðskiptavinir þínir stoppi lengur við til að nýta sér aðstöðu þína.
FLUGVELLIR OG ÁNINGARSTAÐIR
Staðbundna hraðbankaþjónustan okkar býður m.a. upp á gjaldmiðlaúttekt, myntskipti, kortalausa úttekt, auglýsingar og fl.
SMÁSALA
Hraðbankalausnir okkar eru þróaðar til að virka fyrir allar gerðir smásala… litlar, meðalstórar eða stórar keðjur á mörgum stöðum.